
Velkomin í Bogfimisetrið, Reykjavík
Prófaðu Bogfimi!
Engin reynsla nauðsynleg

Opnunartími
| Virkir dagar | 14:00 – 21:00 |
| Helgar | 11:00 – 21:00 |
Tímaverð
| 30 mín | 3.000 kr. á mann |
| 60 mín | 4.000 kr. á mann |
| 90 mín | 5.000 kr. á mann |
Afslættir
25% afsláttur af tímaverðinu fyrir:
Börn (16 ára og yngri), öryrkja með örorkukort og reynslubolta 67 ára+
Einnig hægt að bóka í gegnum síma, tölvupóst og á Facebook.
Hvernig virkar þetta?
Hefur þú aldrei prófað bogfimi?
Það er einfaldara en þú heldur.
1
Bókaðu tíma
Hægt er að velja á milli 30, 60 eða 90 mínútna.
2
Mættu á staðinn
Við lánum þér boga og allan búnað og sýnum þér réttu tæknina. Leiðbeinandi fer yfir öryggis- og grunnatriði í bogfimi sem tekur um 7 mín en eftir kennsluna byrjar tíminn að skjóta.
3
Skjóttu í mark
Engin reynsla nauðsynleg! Bara að mæta og hafa gaman.


Hvar erum við?
Bogfimisetrið er staðsett að Dugguvogi 42, 104 Reykjavík. Farið er á bak við hús, nær Sæbrautinni, og gengið er þar inn um fyrstu hurð til hægri og upp á 2. hæð.
Öryggi og umgengni
Bogfimi er örugg og skemmtileg íþrótt þegar farið er eftir nokkrum einföldum reglum. Þær eru til staðar svo öll getum við notið okkar áhyggjulaust í salnum.
- Gestir skulu taka þátt á eigin ábyrgð og fara eftir leiðbeiningum starfsfólks.
- Börn 16 ára og yngri eru ávallt undir eftirliti forráðamanna meðan á tíma stendur.
- Börn koma og fara með forráðamönnum sínum — ekki er skilið við þau ein í salnum.
- Neysla áfengis og/eða vímuefna er ekki leyfileg í salnum. Þeim sem eru undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna verður vísað frá.

